27. apríl - 1. maí

22.04.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur


27. apríl – 1. maí 2015


 



  • Frá 28. apríl til 6. maí verður lestrarsprettur í öllum bekkjum. Þá breytum við heimalestrinum og munu krakkarnir  fá mismunandi lestrar-verkefni með sér heim á miðvikdaginn. Í lok lestrarspretts verður síðasta hraðlestrarpróf vetrarins. 

  • Á fimmtudag ætlum við að hafa samveru með 3 bekk og munu krakkar úr báðum bekkjum sýna ýmis atriði; t.d. galdra, segja brandara, dans eða söng.

  • Föstudaginn 1. maí er enginn kennsla.


 


 


Viðfangsefni vikunnar er m.a.


 


Byrjendalæsi:           Við vinnum með bókina Númi og konurnar þrjár og samþættum það við samfélagsfræði og lífsleikni. Við vinnum með eftirfarandi þætti: lestur, lesskilning, orðaforða, skrift og tvöfaldan samhljóða. Förum yfir öryggismál í umferðinni og á hjóli og umferðarreglur.


 


Útikennsla:               Hringekja í ýmsum verkefnum í stærðfræði og íslensku.


 


Stærðfræði:                    Rifja upp; helmingi minna og helmingi meira (hefti útbúið af kennurum)  og Í undirdjúpum.


 


Tónmennt:              S amsöngur og Blessuð vertu sumarsól (læra utan að fyrsta erindi) og Fann ég á fjalli fallega steina.


       


 


 


Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir og tæknimennt/myndmennt.


 


 



Heimavinna


-       Mánudag og þriðjudag: Lesa í bókinni sinni.


-       Miðvikudag - Sunnudags: Lesa á hverjum degi lestar-verkefni sitt (fimman, tímataka og fleira).


 


Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa  bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.


 



 


 


Kveðja,


Kristín og Hrafnhildur