27. – 31. janúar 2014
27.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði höldum við áfram að læra um hafið.
Í samfélagsfræðinni byrjum við á verkefni um lifnaðarhætti í Afríku og byrjum á að skoða húsakost þar.
Í stærðfræði vinnum við bls. 6-15 í Sprota B, sem er ummál og flatarmál.
Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og ýmis verkefni unnin samkv. Byrjendalæsi. Við leggjum áherslu á umhyggju í þessari viku og gerum verkefni í því sambandi. Við munum áfram leggja áherslu á ljóðalestur og æfa upplestur ljóða..
Upplýsingatækni verður samþætt ensku og náttúrufræði.
Í ensku tökum við orðaforða um fjölskylduna.
Svo fara nemendur líka í hringekju, myndmennt, dans, tónmennt, sund, leikfimi og útiveru.
Kveðjur,
Árný og Laufey








