27. - 31. október
24.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
27.-31.október
Bangsadagur
Á mánudaginn 27. október er alþjóðlegi bangsadagurinn á Bæjarbókasafninu. Dagskráin hefst þar kl. 16:00.
Við í 1. bekk ætlum líka að halda upp á þennan dag og því mega allir sem vilja koma með bangsa í skólann. Saga vikunnar er um bangsann Paddington.
Okkur langar til að biðja ykkur um að safna töppum af plastflöskum og fernum og koma með í skólann. Við ætlum m.a. að nota þá í Byrjendalæsisvinnu og stærðfræði.
Vinsamlega skoðið í pennaveksin og athugið hvort það vanti blýanta, strokleður og yddara.
Viðfangsefni vikunnar:
Íslenska:
Byrjendalæsi; unnið með stafina Bb og Jj. Bók vikunnar er Paddington í skemmtiferð eftir Michael Bond
Stærðfræði:
Sproti 1b; nemendabók bls. 2 - 11 og aukabækur.
Lífsleikni: Vinir Zippýs. 1. kafli. 3 kennslustund; að vera afbrýðisamur
Tónmennt: Róbert bangsi og fleiri bangsalög.
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist
Heimanám :
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann.
Sögubókin (val): Stafirnir Bb
og Jj.
Skrifa sögu þar sem stafirnir Bb
og Jj
eru notaðir, teikna og lita mynd við söguna .
Skila mánudagur 3. nóvember
Bestu kveðjur
Helga og Árný








