27. - 31. ágúst

23.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur


27. ágúst – 31. ágúst


Sæl og blessuð, nú er nýtt skólaár að hefjast og spennandi vetur framunda.


Krakkarnir mættu kát og hress í skólann á skólasetningardaginn og


allir viðrast tilbúnir til að takast á við vinnu og störf komandi vetrar. 


 


Fyrst um sinn ætla ég að skoða með krökkunum gömul samræmd próf í íslensku og stærðfræði þar sem þeir fara í samræmd próf í íslensku og stærðfræði  20. – 21. september.


Við ætlum að skoða uppbyggingu prófanna og hvaða vinnubrögð eiga við hvern þátt en að öðru leiti höldum við okkar striki í náminu og höldum áfram þar sem frá var horfið sl. vor. 


Ég vil  benda foreldrum á að hægt er að nálgast eldri samræmd próf á www.namsmat.is , undir Samræmd próf/próf og svör. Þar er hægt að prenta út að vild og æfa sig heima. Einnig bendi ég  á Skólavefinn.is þar sem hægt er að kaupa aðgang að gagnvirkum æfingum.


 


Ég stefni að því að ný vikuáætlun kom á heimasíðuskólans www.grisa.isafjordur.is/bekkir/4_bekkur/  á föstudögum.


 


Heimanámið í vetur verður með líku sniði og í fyrra. Nemendur fá afhentar heimanámsmöppu á föstudögum sem þeir svo skila næsta fimmtudag.


Heimalestur er fimm sinnum í viku og svo höldum við áfram með fimmorðabókina.


 


Grunnskólinn stefnir að því að verða grænfánaskóli og liður í því starfi að minnka allt rusl og úrgang sem kemur frá skólanum. Gott er að nemendur taki með sér drykki í margnota umbúðum/flöskum og ef þeir koma með safa eða jógúrt/skyr í einnotaumbúðum taka þeir umbúðirnar með heim.  Eins og áður hvet ég til þess að nemendur komi með hollt nesti t.d. ávexti og grænmeti. 


 


Ísafjarðarbær hefur tekið við rekstri mötuneytisins og fara skráningar nú fram á heimasíður bæjarins. 


Sundlaugin verður lokuð til 10. september og á meðan er útikennsla í sundtímum.  Eins og ávallt er nauðsynlegt að börnin séu klædd í samræmi við veður þar sem þau fara bæði út í frímínútum og í útikennslu. 


 


Leikfimi  verður kennd úti til 1. október.  Þegar innileikfimi hefst eiga nemendur í 4. bekk að vera í tátiljum eða innanhússskóm.


 


Viðfangsefni vikunnar:


Stærðfræði: Sproti 4a bls. 1 – 6 og gömul samræmd próf.


Íslenska: Skinna bls. 3 og gömul samræmd próf.


Náttúrufræði: Fjallganga


Samfélagsfræði: Fjallganga


Lífsleikni: Eineltishringurinn


Kristinfræði: Fjallganga


Upplýsingatækni:  Upprifjun og skoða www.nams.is


Enska: My name is...


 


Þó ég skipti námsgreinum niður eins og hér að ofan minni ég á að námsgreinar geta skarast og þessi niðurröðun aðeins til viðmiðunar og stundum gerist eitthvað óvænt sem kollvarpar öllum áætlunumSmile


 


 


Heimanám:              


Við förum hægt af stað í heimanámið og þessa vikuna einbeitum við okkur að koma heimalestrinum af stað. 


Lestur og 5-orða bók.


Nemendur þurfa að lesa heima a.m.k.  5 sinnum í viku.


Í lestrarvasanum, með lestrarbókinni á að vera stílabók


sem kallast  5-orða bók. A.m.k.  þrisvar sinnum í viku eiga nemendur að velja 5 orð sem þeir lásu heima og skrifa þau í þessa bók ásamt dagsetningu. 


 


Fjallganga.


Miðvikudaginn 29. ágúst förum við í fjallgöngu upp í Naustahvilft.


   Við ætlum að hjóla inn í fjörð og því verða allir að mæta á hjólum, með hjálm og klædd eftir veðri.


Foreldrar eru velkomnir meðSmile  Allir þurfa að koma  með léttan bakpoka sem inniheldur nesti og berjabox og pennaveski. Allir þurfa að hafa  staðgott  morgunnesti.


Við ætlum að grilla pylsur í hádeginu og þeir sem eru í mötuneytinu fá pylsur og pylsubrauð þar, aðrir þurfa að koma með pylsur og brauð  með sér eða annað gott hádegisnesti.  Við leggjum af stað frá skólanum um 8:30 og hjólum sem leið liggur inn í fjörð og að Naustahvilft og göngum þar upp og borðum nesti. Eftir gönguna hjólum við inn í Tunguhverfi að leikvellinum, grillum pylsurnar og  leikum okkur saman og hjólum heim í skólann í lok dags.  ATH þetta getur breyst eftir veðri. 


 


Hlakka til að starfa með ykkur í vetur


Kveðja Helga Aðalsteinsdóttir