27.-31. maí 2013

12.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Vikan 27.-31. maí 2013


ü Mánudagurinn 27. maí er hefðbundinn.


ü Þriðjudaginn 28. maí, er hjólaferð inn í Tunguskóg. Nemendur úr firðinum mæta á hjólunum sínum við strætóskýli við Skógarbraut en hinir mæta kl. 8 og munum við leggja af stað frá skólanum kl. 8:30. Allir verða að vera með hjálm, nesti í léttum bakpoka. Við munum grilla pylsur og þeir sem ekki eru í mötuneyti geta komið með pylsur og brauð að heiman.


ü Miðvikudaginn 29. maí er sveitaferð að Hóli í Önundarfirði. Við leggjum af stað frá skólanum kl. 8:30 í einkabílum. Eftir heimsóknina ætlum við að fara í fjöruna að Holti og má koma með fötur og skóflur. Allir eiga að koma með nesti og vera klædd eftir veðri, gott að vera í stígvélum. Við munum borða hádegismat í mötuneytinu.


ü Fimmtudaginn 30. maí er tiltektardagur í stofunni og eiga nemendur að koma með skólatöskuna, lestrarbókina, pennaveski og nesti.


ü Föstudaginn 31. maí er vorverkadagur og verðum við út um allan bæ. Koma með nesti í léttum bakpoka og vera klædd eftir veðri. Skólatími 8-12.


ü  



Munið að vera dugleg að lesa ykkur til ánægju og yndisauka J



 



  • Mánudag og þriðjudag 3. og 4. júní er síðustu dagar skólaársins. Þá


munum við vera í tiltekt og útivist. Nemendur koma með tvöfalt nesti þar sem mötuneytið er lokað. Koma með skólatösku og pennaveski.


 


v Þar sem þetta er síðasta vikuáætlunin viljum við þakka ykkur foreldrum fyrir samstarfið í vetur, með ósk um að allir njóti sumarsins sem best.


Bestu kveðjur


Kristín og Ranný


 



 
 
  
  
  Vikuáætlun 3. bekkur


Vikan 20.-24. maí 2013



 Alla þessa viku (nema mánudag) er skóli frá 8-13, (nema að á föstudag er skóli frá 8-12)
og hefðbundin kennsla (sund,  verkgreinar
o.s.f.v.), fyrir utan prófin



 Mánudaginn 20 maí,  er annar í hvítasunnu og því enginn
skóli
.



 Þriðjudaginn 21. maí, kl. (8-13) er skriftarpróf
(koma með góðan yddaðan blýant og strokleður.


 


 Miðvikudaginn 22. maí (kl 8-13) er lesskilningspróf.



 Fimmtudaginn 23. maí (kl 8-13) er stærðfræðipróf.


 


 Föstudaginn 24. maí er leikjadagur, (kl. 8-12)  við verðum að mestu
utandyra. Koma með nesti í léttum bakpoka (og hádegismat fyrir þá sem ekki eru
í mötuneyti) og vera klæddur eftir veðri.




 
Viðfangsefni vikunnar:

Íslenska: Próf í skrift og
lesskilning. Aukabækur.

Stærðfræð i: Upprifjun og próf

Náttúrufræði/ samfélagsfræði: Tilraun í náttúru-fræðistofu.     Myndband um dýr.

Lífsleikni: Fellur niður v. leikjadags.

Kristinfræði: Fellur niður v. leikjadags.

Tónmennt: Vorlögin






Heimanám:

Lesa heima á hverjum degi og skrifa í 5-orðabók þrisvar sinnum í viku  með tengiskrift (skrýtin/erfið orð)
.

-Íslenska: æfa sig í tengiskrift

-Stærðfræði: Fara yfir Sprotabækurnar og upprifjunarhefti



  Bestu kveðjur Kristín og Ranný


 ___________________________________________________________________  


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


  Vikuáætlun 3. bekkur


   Vikan 13.-17. maí 2013


ü   Í íslenskutímunum ætlum við að æfa okkur í að taka samræmt próf og munum taka hluta úr eldri samræmdum prófum, einnig sendum við í heimanám helming af samræmdu íslensku prófi til að leyfa ykkur að sjá við hverju má búast. Þetta getur verið erfitt fyrir suma svo þið metið það hversu mikið þau gera.


ü  Í stærðfræðinni ætlum við að vera með upprifjun fyrir vorprófið og taka nemendur bókina Sprota 3b með heim í lok vikunnar.    


ü  Prófin byrja í næstu viku.Þriðjudaginn 21.maí skriftarpróf, miðvikudaginn 22.maí lesskilningspróf og fimmtudaginn 23.maí stærðfræðipróf.


 


 



Viðfangsefni vikunnar:
Íslenska: Eldri samræmd próf. Lesskilningur,andheiti, samheiti, málnotkun, samsett orð, stafsetning og ritun (skrifa sögu) o.fl.
Stærðfræð i: Höfum lokið Sprota b og förum í upprifjun fyrir próf.
Náttúrufræði/ samfélagsfræði: Í sveitinni með Æsu og Gauta, bls. 44-47; myndband og hópverkefni.
Lífsleikni: Samvera
Kristinfræði: Kynning á Hindúatrú, verkefni
Tónmennt: Vorlögin  




Heimanám:
Lesa heima á hverjum degi og skrifa í 5-orðabók þrisvar sinnum í viku   með tengiskrift (skrýtin/erfið orð)
.
Íslenska: Helmingur af samræmdu prófi.
Stærðfræði: Setja upp mínusdæmi í reikningsbók.
                            Skila heimavinnu: fimmtudaginn 16. maí



 


                                Bestu kveðjur Kristín og Ranný