26. maí – 30. maí

23.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur


26. maí – 30. maí


 


 


Þá er nú komið að síðustu dögum skólastarfsins þennan veturinn og verða þeir frekar óhefðbundnir. Mötuneytið verður með óbreyttu sniði þessa vikuna.


 


Mánudagur: Hjólaferð og fuglaskoðun.


Nemendur í firðinum hjóla að Brúarnesti þar sem Atli íþróttakennari tekur á móti hópnum. Aðrir nemendur hjóla frá skólanum ásamt kennurum. Lagt af stað 08:10.


Mikilvægt að allir séu með hjálm og í vatnsheldum skófatnaði. Skólataska er óþörf en hafa þarf með nesti í bakpoka, einnig er gott að hafa kíki meðferðis. Áætlað er að nemendur mæti í Frístund kl 11:00.



Foreldrar að sjálfsögðu velkomnir með.



Eftir hádegi verður kynningu á Sumarlestri á Bæjarbókasafninu. Þeir sem eiga bókasafnsskírteini eru hvattir til að taka þau með sér.


Þriðjudagur: Venjulegur skóladagur. Muna sundföt.


Miðvikudagur: Vorverkadagur, sjá nánar þegar nær dregur.


Fimmtudagur: FRÍ


Föstudagur: Leikjadagur, sjá nánar þegar nær dregur.


 


Heimanám – Heimalestur


Kveðja.


Jón Heimir og Sigþrúður