26. – 30. maí
23.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á mánudaginn förum við í fyrri hjólaferðina okkar (inn í Tungudal) og miðum við að leggja af stað frá skóla kl. 8:00. Þeir sem búa inni í firði geta hjólað á móti hópnum. Við óskum eindregið eftir því að fá foreldra með í ferðina. Gott væri að fá skilaboð í tölvupósti um hverjir koma með. Við verðum komin til baka í skólann fyrir matartímann og eftir hádegi verða hringekjutímar. Muna að klæða sig eftir veðri.
Þriðjudagur er hefðbundinn skóladagur.
Miðvikudagur er vorverkadagur og þá fara nemendur í ýmiskonar vinnu fyrri hluta dags. Nánar um það síðar.
Fimmtudagur er uppstigningardagur og þá er frí.
Á föstudaginn er leikjadagur hjá yngsta stigi.
Kveðjur,
Árný og Laufey








