25 orða sögur
28.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Krakkarnir eru búnir að vera að glíma við að semja örsögur í dag. Sögurnar eiga að vera nákvæmlega 25 orð. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt. Við mælum með að allir reyni að gera örsögur.
Hér eru nokkur dæmi:
Pennaveskið liggur á borðinu opið og það liggur penni við hliðina því. Afhverju liggur penninn við hliðina á pennaveskinu? Afhverju? mig langar að vita það.
Þegar hann fann blaðið hljóp hann alla leið heim. Hann sparkar upp hurðinni, hleypur inn í eldhús, grípur steikarhnífinn. Öskur heyrist fyrir ofan, hann stekkur.
Maður var að labba niður Laugaveginn svo stoppaði hann og horfði í einn glugga og sá drauma jakkafötin sín og tók strax upp peningaveskið sitt.
Einu sinni var sjóræningi sem hét Haukur. Hann hélt að hann ætti stórt sjóræningjaskip en hann átti það ekki í alvöru og sökkti því strax.
Ég hugsa, ég hugsa um þátíð, nútið og framtíð og velti því fyrir mér að dauðir, lifandi, litlir, stórir og litskrúðugir hafi upplifað það allt.
Ég velti mér á hina hliðina og reyndi að sofna. Ég gat það bara ekki. Það var eins og það væru tannstönglar á milli augnlokanna.
Ég skrifa. Ég hef skrifað síðan ég byrjaði í skóla. Ég er alltaf að skrifa. En hver getur skrifað ef hann kann ekki að lesa?
Hæ, ég er lítil kanína sem er asna smjör með osta skerara sem er skeið. Ég borða gulrótina sem er brauð og síðan dey ég.
Ég er Kalli á þakinu og ég er mjög skrítinn og feitur og á heima á þakinu hjá öðru fólki. Já, það er svolítið creepy.
Enginn gengur á gangi eða lengir lengdan öngul lengur á göngum gangavarða. En jánkaði gamlinginn vöngum söng og enginn syngur söng sinn, enginn syngur söng.
Ég ætla að hringja í einhvern. Ég slæ inn númer á símann, átta, sex, tveir, átta, níu, þrír, fjórir. Hæ, hæ svaraði besta vinkona mín.
Þegar ég var ungur var ég ekki orinn læs. Lífið var skrítið lífið var nice himininn var blár, grasið var grænt ég vissi ekki rass.
Maður fór í fjallgöngu. Á leiðinni upp á fjallið hrasaði hann og datt niður allt fjallið. Hann lá í blóði sínu þangað til hann fannst.








