25. - 30. maí
22.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
25.-30. maí 2015
- Á mánudag er annar í hvítasunnu og því enginn skóli.
- Á þriðjudag er hefðbundinn skóladagur með sundi/dansi, nesti og skólatösku. (Skólatími 8-13:40).
- Á miðvikudag ætlum við að fara hjólaferð inn að Skeiði. Við ætlum að fara í fuglaleiðangur og athuga hvaða fuglategundir við sjáum og heyrum í. Þá eiga allir að mæta á hjólum með hjálm í skólann. Þá á bara að taka nesti í léttum bakpoka. Krakkar sem búa inni í firði mæta á gervigrasvöllin þar og þar verður fullorðin sem bíður þar með hópinn og hjóla síðan að Bónus kl. 8:30. (Upplýsingar um hver það er kemur seinna á fb síðu árgangsins). Allir hinir mæta í skólann kl. 8 og leggjum við af stað kl 8:30. (Skólatími 8-13:40).
- Á fimmtudag er vorverkadagur, þar sem allir árgangar skólans hreinsa til í bænum okkar. Þá mæta allir með nesti í léttum bakpoka. Öllum er boðið í pylsuveislu í hádeginu og frístund byrjar kl 13. (Skólatími 8-13).
- Á föstudag er hefðbundinn skóli með nesti og skólatösku. (Skólatími 8-13:40).
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Byrjendalæsi: Ljóð; við skoðum ýmsar gerðir af ljóðum og vinnum verkefni og semjum vor/sumarljóð og myndskreytum.
Stærðfræði: Í undirdjúpum.
Einnig förum við í sund, íþróttir, dans og tæknimennt/myndmennt.
Heimavinna
- Lesa a.m.k. 5 sinnum heima upphátt fyrir fullorðinn. Ef það gleymist að skipta um bók í skólanum, þá er bara að lesa í bók/blaði heima.
- Þar sem margir hafa áhuga á fuglum og er í boði að fá fuglaskoðunarbók í skólanum. Þá er gaman að fara út með einhverjum fullorðnum og skrá hvaða fuglar sjást og lýsa þeim.
Kveðja,
Kristín og Hrafnhildur








