25. - 29. nóvember 2013
22.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur
Þessa viku munum við leggja sérstaka áherslu á skrift og allir fá Ítalíuskriftarbók til að æfa sig í. Við munum skrifa í 10 - 15 mínútur á dag.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði athugum við fengitíma húsdýranna, hversu lengi þau ganga með afkvæmin og fleira því tengt. Veður og orð tengd veðri eru í skoðun þessa dagana og við höldum því talsvert áfram.
Áfram verður fjallað um mannkynssöguna. Núna fjöllum við um endurreisnina og fund Kólumbusar á Ameríku.
Í stærðfræði vinnum við áfram í Sprota á einstaklingsgrundvelli.
Í íslensku vinnum við í Sögusteini, skrifum og lesum og förum í stöðvavinnu.
Upplýsingatæknin verður samþætt byrjendalæsinu og náttúrufræði.
Í dansinum vorum við að horfa á mynd og skoða ýmis dansspor sem sjást í henni. Við ljúkum við að sjá myndina og æfum spor.
Enskan verður samþætt upplýsingatækni og náttúrufræði.
Svo fara nemendur líka í hringekju,myndmennt, tónmennt, íþróttir, sund og útiveru.
Umræða er alltaf öðru hvoru um hegðun og ástundun í skólanum og lífsleikninni er fléttað inn í mörg fög t.d. íslensku, samfélagsfræði og tónmennt.
Kveðjur,
Árný og Laufey








