24. – 28. mars 2014
21.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú fer árshátíðarundirbúningur af stað og krakkarnir verða vafalaust talsvert upptekin af þeirri vinnu. Eitthvað þarf af búningum og leikmunum þegar það kemur í ljós hver á að leika hvað. Skólinn á talsvert af munum en það þarf vafalaust að leita eftir einhverri hjálp að heiman.
Nokkuð margir tóku stærðfræðibókina með sér heim, því þeim hefur gengið hægt að vinna í skólanum og hafa dregist aftur úr.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Árshátíðarundirbúningur verður talsverður fram að árshátíðinni.
Í náttúrufræði vonumst til að ljúka við bókina Náttúran allan ársins hring.
Í samfélagsfræðinni vinnum við í Komdu og skoðaðu þjóðhætti. Við verðum í all nokkurn tíma með þessa bók.
Í stærðfræði verður könnun í Sprota 4B og síðan er haldið áfram í næsta kafla og við reynum að ná niður bls. 70.
Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og bókin Málrækt verður notuð.
Í ensku verður upprifjun á orðaforða og einstaklingsmiðuð vinna.
Svo fara nemendur líka í dans, hringekju, leikfimi, myndmennt, sund. tónmennt og útiveru.
Kveðjur,
Árný og Laufey








