24. – 28. feb. 2014

21.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á föstudaginn 28. feb. verður Lestrarveisla. Við bjóðum 3. bekk og ykkur foreldrum 4. bekkjar að koma og hlusta á börnin ykkar lesa ljóð og þulur. Við verðum með kaffi og djús og ætlum að biðla til ykkar um að koma


með eitthvað með kaffinu, helst eitthvað sem er þægilegt að halda á, t.d. muffins.


 


Lestrarveislan verður kl. 9:40 í dansstofunni.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


Í náttúrufræði erum við að ljúka bókinni  um hafið. Við höfum verið að okkur strandlengju Íslands og sjávarútveginn nú og áður fyrr.


 


Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram  verkefni um lifnaðarhætti í Afríku og gerum verkefni um húsin þar. Síðan ætlum við að líta á íslenska þjóðhætti og gömlu mánaðarnöfnin.


 


Í stærðfræði vinnum við niður bls. 44   í Sprota 4B, sem er margföldun og deiling. Við gerum æfingarblaðsíðurnar (bls. 45 og 46)  í skólanum og tökum e.t.v. könnun úr kaflanum. Þeir sem eru á góðu róli vinna svo í aukabókum.


 


Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og ljóðavinna. Við erum að undirbúa Lestrarveisluna. Ef tími gefst lesum við Sögustein og gerum verkefni samkvæmt Byrjendalæsi úr þeirri bók.


 


Í ensku verður upprifjun á orðaforða og unnið með bókina Amazing animals.


 


Upplýsingatækni verður samþætt íslensku.


 


Svo fara nemendur líka í hringekju, dans, myndmennt, tónmennt, sund, leikfimi og útiveru.


 



Kveðjur,                       


          
Árný og Laufey