23.-27.september
20.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Þetta er málið: verkefnabók verkefni 15 og orðarugl, lesbók bls. 24-27, Sögusteinn bls. 8-15, skrift,lestur.“Fréttir vikunnar“.
Stærðfræði: Stika 1a; Tugakerfið, nemendabók bls.14-19, æfingahefti, aukabækur.
Samfélagsfr.: Land og líf lesbók bls. 14-15 og vinnubók bls.12-13. Eldur í jörðu.
Fréttamenn vikunnar Hrafnhildur Una Rósbjörg Edda |
Náttúrufræði: Auðvitað 1.
Enska: Numbers: Speak Out bls.8-9 Work Out
bls.9-10,
Lífsleikni: Þarfirnar okkar.
Tilkynningar:
- Fyrsta ljóðið af þremur sem nemendur eiga að læra utanbókar í vetur er ljóðið „Fjallganga“ eftir Tómas Guðmundsson. Á miðvikudaginn verður könnun upp úr ljóðinu sem verður í eyðufyllingar formi. Nemendur eiga líka að þekkja nafn höfundar.
- 5.bekkur ætlar að vinna verkefnið „Frétt vikunnar“ í vetur. Í hverri viku munu 2 nemendur endursegja munnlega fyrir bekkinn frétt að eigin vali (á föstudegi). Fréttina/greinina finna þau sjálf í dagblöðum, tímaritum eða fréttamiðlum á netinu. Einnig getur kennari útvegað frétt ef svo stendur á og aðstoðað nemendur í kennslustundum með verkefnið. Þau geta ýmist unnið þetta í skólanum eða heima. Markmiðið er að öðlast færni í að endursegja texta með eigin orðum og koma fram.
- Við minnum á heimalesturinn á hverjum degi, fyrsta hraðlestrarprófið verður í vikunni.
Heimavinna: Læra Fjallgöngu utanbókar
Lestur alla daga, a.m.k 15 mínútur á dag.
Ljúka skólaverkefnum. Bestu kveðjur, Erna og Rannveig.








