23.-27. apríl
13.04.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 7. bekkjar
23.-27. apríl 2012
Íslenska: Ljúka við Málrækt bls. 96-97. Könnun úr fornöfnum bls. 59-97 í næstu viku. Ljúkum við Sigurð Fáfnisbana.
Mál er miðill 5 blaðsíður.
Stærðfræði: Rökfræði bls. 99-102 í Geisla 3 og bls. 16 og 17 í vb. Unnið áfram í Geisla. Könnun úr algebru- og/eða
prósentukaflanum.
Samfélagsfr.: Evrópa, bls. 17-23, og vinnubók bls. 35, 37, 40, 45, 47 . Kortavinna og fréttir.
Náttúrufræði: Maðurinn bls. 58-63 og vinnubók bls. 35-39.
Danska: Unnið og sett fyrir í tíma.
Enska: Unnið og sett fyrir í tíma.
Lífsleikni: Einelti. Ertu? bls. 25-28.
Gáta vikunnar
Glundroði ég alger er.
Út og niður pota ég mér.
Ég er orða uppruni.
Allt annað en góðmenni.
Komið með lausn til kennara í síðasta lagi á föstudaginn.
Gleðilegt sumar.
Hafdís og Hlíf
Vinnuáætlun 7. bekkjar
16.-20. apríl 2012
- Á mánudaginn fá stelpurnar þriðju og síðustu bólusetninguna gegn leghálskrabbameini.
- Á fimmtudag og föstudag verður frí í skólanum, sumardagurinn fyrsti og vorfrí.
Íslenska: Grænkápa, bls. 108-112, Sigurður Fáfnisbani lesinn þar til sagan er búin. Verkefni úr sögunni. Mál er miðill 4 blaðsíður.
Stærðfræði: 3 blaðsíður í Geisla 3 og 2 blaðsíður í vinnubók. Könnun úr algebru- og/eða prósentukaflanum.
Samfélagsfr.: Evrópa, bls. 12-16, og vinnubók bls. 20-29, 34,35 og 37. Kortavinna og fréttir.
Náttúrufræði: Maðurinn bls. 54-59 og vinnubók bls. 32-35.
Danska: Unnið og sett fyrir í tíma.
Enska: Unnið og sett fyrir í tíma.
Lífsleikni: Einelti. Ertu? bls. 23-24.
Gáta vikunnar
Fer af stað á fimmtudegi.
Fingur knýja, hljómar þá.
Í henni situr sandur eigi.
Sællegt fljóð með hýra brá.
Komið með lausn til kennara í síðasta lagi á miðvikudaginn
Hafdís og Hlíf








