22. - 26. september 2014

19.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Íslenska:          Þetta er málið, lesbók 1 bls. 20-21 Bjarni Thorarensen og Dýrhóll ásamt vinnubók bls. 15-19 samheiti, orðskilningur, ljóð og ljóðskilningur. Ljóð: Fjallganga (1. erindi) – Nú þurfa allir að læra fyrstu 12 línurnar utan bókar í þessari viku.  Hljóðlestur.


 


Stærðfræði:         Stika 1a – Nemendabók bls. 19-23, samlagning og frádráttur, ásamt ítarefni úr æfingahefti.


 


Samfélagsfræði:    Ísland, veröld til að njóta – lesbók bls. 16-19, jarðsaga Íslands.  Vinnubók bls. 9-12.


 


Náttúrufræði:       Auðvitað 1 bls. 18-21, ljós, linsur og speglar ásamt verklegum æfingum.


 


Enska:             Speak out – orðaforði.


 


Lífsleikni:              Uppbyggingarstefnan – þarfir okkar, eineltisumræða.


 


Tilkynningar:



  • Tengiliðir foreldra í vetur verða þeir Árni Heiðar Ívarsson og Jóhann Bæring Gunnarsson.

  • Nú hafa krakkarnir valið 6 vinaliða sem starfa fram að áramótum. Það eru þau Alma Rán, Jóhanna Ýr, Snæfríður Lillý, Arnar Rafnsson, Kári og Magnús Örn. Þessir krakkar fá námskeið þriðjudaginn 30. september varðandi þeirra hlutverk sem vinaliðar.

  • Nemendur þurfa að læra að lágmarki 3 ljóð í vetur. Þeir sem gera þeim skil á réttum tíma fá 10 í ljóðaeinkunn. Ef einhverjir ná því ekki, þurfa þeir að þreyta ljóðapróf í vor.
    Nú er komið að skilum á fyrri hluta ljóðsins Fjallgöngu. Nemendur þurfa að fara með 12 fyrstu línur ljóðsins utan bókar í þessari viku.

  • Á föstudaginn er Evrópski tungumáladagurinn og munum við velta fyrir okkur öðrum tungumálum í tilefni dagsins.


 



Heimanám: Daglegur lestur.



Bestu kveðjur,


Auður og Helga