21. - 25. nóvember 2011
15.11.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Stafainnlögn Bb.
Það er leikur að læra, lesbók bls. 38 - 39.
Það er leikur að læra vinnubók bls. 28 - 29. Skriftaræfingar.
Stærðfræði: Sproti 1a bls. 58 - 72. Æfingahefti.
Náttúrufræði: Unnið með kindina, tengt vinnu með K.
Samfélagsfræði: Telja farartæki sem keyra fram hjá ákveðnum stað, skrá og gera súlurit.
Jóladagatal útbúið.
Auk þessa fara nemendur í sund, leikfimi, útivist, textílmennt, tæknimennt, myndmennt,
kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt og tákn með tali.
Heimavinna: B saga í sögubók.
Heimavinnan verður í töskunni á mánudag og henni á að skila
miðvikudaginn 23.nóvember.
Á föstudeginum í þessari viku ætlum við að hafa samveru þar sem nemendur mega
koma fram og segja brandara, gátur eða vera með lítil atriði. Gott er að ræða
það heima og rifja upp með þeim eitthvað sem þau kunna. Aðeins þeir sem vilja
koma fram gera það, enginn verður skikkaður til þess.
Nú ætlum við að byrja á því að æfa táknin fyrir jólasveinana. Tíminn líður svo hratt að
þeir verða mættir á svæðið áður en við vitum af. Þeir jólasveinar sem verða
teknir fyrir í þessari viku eru: Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur og
Þvörusleikir.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








