21. - 25. maí

18.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

  Íslenska:        Upprifjun fyrir próf á miðvikudag.



Stærðfræði:   Upprifjun fyrir próf á mánudag og þriðjudag, próf á fimmtudag.



Samfélagsfr.: Land og líf – próf á föstudag, sjá hér að neðan.



Náttúrufræði: Lífríki í sjó 1. kafli, Hafsjór.



Enska:         Próf á mánudag, sjá hér að neðan.  



 


Tilkynningar:





  • Á mánudag, þriðjudag og föstudag er kennt samkvæmt stundaskrá.


  • Á mánudaginn er vorpróf í ensku. Lesa á niður bls. 37 í Speak out og niður bls. 73 í Work out. Skila á vinnubók og stílabók í tímanum.


  • Á mánudaginn er einnig skriftarpróf í íslenskutímanum.


  • Á þriðjudaginn er framsagnarpróf. Nemendur fá prófið með sér heim deginum áður eins og reglur segja til um. Lesa á brot úr þjóðsögu og stutt ljóð. Það sem metið er til einkunnar er:


    • hvort lesið er á eðlilegum hraða (ekki of hratt)


    • hvort rétt er lesið


    • hvort blæbrigði eru þannig að innihald textans skiljist vel


    • hvort þagnir koma á réttum stöðum í textanum


    • hvort lesandinn leggur mikla tjáningu í lesturinn.









  • Á miðvikudag er prófadagur, en þá er próf í íslensku kl. 8:00. Prófað er í stafsetningu, málfræði og lesskilningi.


  • Á fimmtudag er einnig prófadagur, en þá er prófað í stærðfræði kl. 8:00.


  • Á föstudag er kennt skv. stundaskrá, en kl. 8:40 er danssýning árgangsins í salnum og hvetjum við alla til að koma og horfa á.


  • Á föstudag er einnig próf í samfélagsfræði úr bókinni Land og líf, bls. 6-44 og vinnubók bls. 4-29.




 


  Bestu kveðjur,



Auður og Helga