21. - 25. apríl 2014

22.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kennsla hófst aftur eftir páskafrí þriðjudaginn 22. apríl.


 


Á fimmtudag verður frí því þá er sumardagurinn fyrsti.


   



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


 


Í náttúrufræði höldum við áfram í bókinni Lífríki í fersku vatni.


 


Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram í Komdu og skoðaðu þjóðhætti.


 


Í stærðfræði verður unnið áfram í Sprota 4B. Við gerum ráð fyrir að flestir ljúki bls. 87 í vikunni.


 


Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og bókin Málrækt verður notuð. Einnig vinnum við í Sögusteini.


 


Enskan fjallar um árstíðirnar og páskahefðir í Englandi.


 


Svo fara nemendur líka í hringekju, leikfimi, sund, dans, tónmennt, myndmennt  og útiveru.



 


Kveðjur,


 


Árný og Laufey