21.-25. okt.
17.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mánudaginn 21. okt. er vetrarfrí í skólanum .
Þriðjudaginn 22. okt. er starfsdagur kennara.
Nemendur mæta samkvæmt stundatöflu á miðvikud. 23. okt.
Við vinnum áfram samkvæmt Byrjendalæsinu í ísl. og vinnum í Sögusteini. Bókin er lesin og ýmiskonar verkefni unnin úr köflum hennar. Hver og einn vinnur í stærðfræðinni í eigin bók.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði verður unnið með fugla.
Í samfélagsfræðinni verður fjallað áfram um mannkynssöguna, við erum að læra um Róm. Mannkynssagan verður á áætlun í nokkurn tíma.
Í stærðfræði vinnum við áfram í Sprota á einstaklingsgrundvelli.
Í íslensku vinnum við í Sögusteini. Það verður stöðvavinna á fimmtudaginn þar sem ýmislegt er gert.
Í ensku verða orð skoðuð út frá náttúrunni, samþætt upplýsingatækni.
Svo fara nemendur líka í hringekju,myndmennt, tónmennt, íþróttir, sund, dans og útiveru.
Núna kemur bréfið í tölvupósti og á grisa.isafjordur.is. Við höldum okkur við þetta fyrirkomulag
áfram.
Hafið það gott í fríinu
Kveðjur
Árný og Laufey








