21.-25. nóvember
18.11.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 7. bekkjar
21.- 25. nóvember 2011
Samræmdu könnunarprófin eru
komin til skólans. Við ætlum við að greina þau og að því loknu fara þau heim. Ef
einhverjir vilja sjá þau nú þegar geta þeir haft samband við okkur.
Í foreldrasamtölum í
síðustu viku var foreldrasamningurinn og útivistarmál nokkuð til umræðu. Ljósrit
af samningnum kemur heim á mánudaginn.
Við viljum minna á
endurskinsmerkin, endilega finnið gömlu merkin og notið þau eða fáið ný.
Það er búið að skipta í
nýja hópa í sundi, hringekju, íslensku og stærðfræði.
Íslenska: Grænkápa bls. 85-95, Miðaldir. Heimalestur.
Ljóð:Lofsöngur, bls. 9, lært utan að.
Stærðfræði:
Geisli bls. 37-39 , brot. Vinnubók bls. 16-18.
Hringur 2.
Samfélagsfr.:
Trúabrögð, islam. Heimalestur.
Náttúrufræði:
Auðvitað 3 bls. 33-36, hitaþensla.
Danska:
Unnið og sett fyrir í tíma.
Enska:
Verkefni úr Picture Dictionary.
Lífsleikni:
Fræðsla um slysavarnir í Hafdísar bekk og hlutverkin í Hlífar bekk. Verkefnið Reyklaus
bekkur kynnt fyrir nemendum.
Gáta vikunnar:
Yfir landi, yfir sjó.
Yfir höfin ganga.
Eftir mann og eftir jó.
Eftir koss á vanga.
Komið með lausn til kennara í
síðasta lagi á föstudag.
Bestu kveðjur, Hafdís og Hlíf








