20. – 24. janúar 2014

17.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


Í náttúrufræði höldum við áfram að læra um hafið.


Í samfélagsfræðinni vinnum við með sögur úr Birtunni og byrjum á verkefni um lifnaðarhætti í Afríku. 


Í stærðfræði förum við í vasareiknibækur og ljúkum Sprota. Væntanlega byrjum við á nýrri Sprotabók í lok vikunnar.


Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og ýmis verkefni unnin samkv. Byrjendalæsi. Við munum leggja áherslu á ljóðalestur og æfa upplestur ljóða á næstu vikum.


Upplýsingatækni verður samþætt ensku og náttúrufræði.


Svo fara nemendur líka í hringekju,  myndmennt, dans,  tónmennt, sund, leikfimi og útiveru.


 


Kveðjur,                                 
Árný og Laufey