2.-6. desember
28.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mánudaginn 2. desember er opinn dagur í skólanum, þá eru allir velunnar velkomnir í skólann að kíkja á það starf sem hér fer fram. Að sjálfsögðu eru foreldrar alltaf velkomnir í skólann
Á fimmtudaginn ætlum við að vera með bekkjarskemmtun, þá mega nemendur koma með eitt dót og smá nammi í skólann.
Viðfangsefni vikunnar
Íslenska: Byrjendalæsi; AU Unnið verður með bókina Rauða húfan eftir M Christina Butler
Stærðfræði: Sproti 1b; nemendabók bls. 46 – 49 og aukabækur. Mínus.
Náttúrufræði: Í gamladaga orðalisti og fleira.
Samfélagsfræði: Aðventan og jólaundirbúningur
Lífsleikni: Aðventustund og bekkjarskemmtun.
Tónmennt: Jólalög.
Myndmennt: Jólaföndur
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist.
Heimanám:
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Sögubókin: Stafurinn AU Skrifa sögu þar sem stafurinn AU eru notaðir, teikna og lita mynd við söguna. Eftir þessa viku fer sögubókin í jólafrí.
Skila sögubók mánudaginn 9. desember.
Bestu kveðjur
Helga og Kristín








