2.-5. júní
30.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
2.-5. júní
- Þetta er síðasta kennsluvika skólaársins.Við verðum að mestu með óhefðbundna kennslu og reynum að vera eins mikið út og vindar leyfa.
- Mötuneytið er lokað þessa vikuna.
- Foreldrar þurfa að panta foreldraviðtöl í mentor.is fyrir fimmtudaginn 5. júní, eins og gert var fyrr í vetur. Farið er inn í skóladagatalið, dagurinn valinn og velja tíma. Hafið samband ef þetta gengur ekki.
2. júní. Skóli 8-13, strætó kl. 13:15 (engin frístund) Við ætlum að fara í skóginn í Stórurð og eiga góðan dag þar. Okkur langar að grilla pylsur og því verða allir sem það vilja, koma með pylsur, pylsubrauð og drykk. Við verðum með meðlæti. Koma með nesti og hádegismatinn í léttum bakpoka.
3. júní. Skóli 8-13, strætó kl. 13:15 (engin frístund). Frágangsdagur í skólanum og því þurfa allir að koma með skólatöskuna til að taka dót heim. Heimsókn á Bæjarbókasafnið þar sem sumarlestur verður kynntur fyrir börnunum. Koma með tvöfalt nesti þennan dag.
4. júní. Starfsdagur kennara og því engin kennsla.
5. júní. Nemendur koma í foreldraviðtal ásamt foreldrum á umsömdum tíma.
Sumarlestur:
Mikilvægt er að lesa reglulega í sumarfríinu, helst á hverjum degi, því mikil hætta að lestrarfærnin detti niður ef engin þjálfun er í gangi.
Takk kærlega fyrir samskiptin í vetur.
Helga og Kristín








