1. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 2012-2013
25.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

1. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 30. ágúst 2012
Mættir:
Birna Lárusdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir, Martha Lilja Marthensdóttir Olsen, Thelma Hjaltadóttir og Þórdís Lilja Jensdóttir
1. Fundartími og fundarstaður
Mánudaga kl. 16:00 - fá aðstöðu á Sundhallarloftinu.
2. Fundur með forstöðumanni Félagsmiðstöðvar og formanni nemendaráðs
Fá fund með forstöðumanni Félagsmiðstöðvarinnar (Djúpið) og formanni nemendaráðs til skrafs og ráðagerða. Áætlaður fundartími 2. þriðjudag 11. september.
3. Fundur með skólastjórnendum
Fá fund með skólastjórnendum í september.
4. Íþróttaaðstaða nemenda í 5. bekk
Stjórn Foreldrafélagsins ákveður að senda mótmæli til skólastjórnenda vegna íþróttaaðstöðu nemenda í 5. bekk - en 5. bekkingar eru nú í íþróttum á Austurvegi en hafa lengi verið í íþróttum á Torfnesi. Bekkirnir eru stórir, 23 í hvorum, og þessi aðstaða getur ekki talist boðleg. Birna sendir bréf.
5. Bréf frá Margréti Halldórsdóttur
Lagt fram bréf frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, vegna skólalóðarmála. Eins og Foreldrafélaginu var kunnugt um var skólalóðarmálum slegið á frest um eitt ár. Foreldrafélagið verður kallað á fund vegna þessara mála í haust.
6. Skjávarpagjöf til GÍ
Tveir skjávarpar voru keyptir og hafa verið færðir GÍ að gjöf. Thelma mun koma málinu á framfæri við fjölmiðla.
7. Bókasöfnun fyrir skólabókasafnið
Samþykkt að fara í söfnun á bókum fyrir skólabókasafnið í vetur. Annars vegar að safna notuðum bókum á foreldradegi og hins vegar að fara í samstarf við Eymundsson í kringum bókaútsölu eftir áramótin.
8. Aðalfundur í lok september
Ákveðið að halda aðalfund í tengslum við fyrirlestur. Hugmynd að fá Hugó Þórisson. martha Lilja ætlar að hafa samband við Hugó. Varahugmyndir; höfundur bókarinnar Skólil og foreldrar, Sif skólastjóri Norðlingaholtsskóla og Margrét Pála skólastjóri á Tálknafirði (kostur nr. 2).
9. Skoðanakönnun vegna innkaupa
Foreldrafélagið ákveður að mótmæla skoðanakönnun um sameiginleg innkaup skólavara sem stjórnendur GÍ létu gera s.l. vor, 2012. Ekki lá fyrir þegar skoðanakönnunin var gerð að 80% foreldra yrðu að samþykkja sameiginleg innkaup, raunin varð 71% samþykki og leit skólinn svo á að tillagan væri ekki samþykkt. Fer Foreldrafélagið fram á að tillagan verði kynnt foreldrum og skoðanakönnunin endurtekin í vetur. Heiðrún sér um málið.
10. Haustfundir
Ákvðið að senda ábendingu til skólastjórnenda um haustfundi .a. þeir lendi ekki á sama tíma hjá neinum þ.a. allir foreldrar sem áhuga hafa geti mætt á sína fundi.
Fundi slitið kl. 19:00, Heiðrún Tryggvadóttir fundarritari.








