1. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 2011-2012
29.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

1. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 2011-2012 mánudaginn 14. nóvember 2011 kl. 16:00
Mættir:
Birna Lárusdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir, Martha Lilja Marthensdóttir Olsen, Steinþór Bragason, Thelma Hjaltadóttir, Þórdís Lilja Jensdóttir og Sóley Veturliðadóttir, fráfarandi formaður.
1. Kosning formanns
Thelma Hjaltadóttir kosin formaður með lófaklappi.
2. Jólaföndur
Ákveðið að fella niður jólaföndur í ár vegna dvínandi þátttöku og tímaleysis. Rætt um hugmyndir að uppákomum.
Ákveðið að stofna Facebook-síðu Foreldrafélagsins. Thelma tekur það að sér. Tekur líka að sér að fá aðgang að Mentor hjá Olgu skólastjóra.
4. Skólalóð
Umræða um skólalóð GÍ. Ákveðið að bjóða Margréti Halldórsdóttur, forstöðumann Skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar á fund stjórnar til að ræða framtíðarskipan skólalóðar. Birna sér um að boða Margréti.
5. Fulltrúaráðsfundur Heimili og skóla
Fulltrúaráðsfundur Heimili og skóla verður haldinn 18. 11. 2011 og mun Þórdís Lilja Jensdóttir, fulltrúi Norðursvæðis, sækja þann fund.
6. Næsti fundur
Næsti fundur stjórnar Foreldrafélagsins boðaður mánudaginn 28. 11. 2011 kl. 18:00. Magrét Halldórsdóttir og Jóna Benediktsdóttir boðaðar.
7. Tónlist fyrir alla
Ákveðið að taka þátt í því fyrir veturinn í ár. Heiðrún og Martha Lilja sjá um það.
8. Fyrirlestrar
Rætt um fyrirlestra og möguleika á því að fá einhvern í slíkt verkefni í vor.
9. Foreldrafærninámskeið
Umræða um að fá Jónu Benediktsdóttur, aðstoðarskólastjóra GÍ, á fund stjórnar og ræða um foreldrafærninámskeið sem skólinn vildi koma á laggirnar. Birna sér um það.
9. Tímasetningar á viðburðum
Rætt um hvernær tímasetning er rétt fyrir viðburði. Henta laugardagsmorgnar? Fyrirlestur og morgunverðarbrunch í bland? Hvenær árs skyldi fyrirlesturinn fara fram? Hugmynddir koma um febrúar. Þórdís Lilja beðin um að hlera á fundi Heimili og skóla hvort einhverjir sniðugir fyrirlesarar séu með góða fyrirlestra.
10. Kennarar á stjórnarfundum Foreldrafélagsins
Athuga með hvort einhverjir kennarar hafi áhuga á að sitja fundi stjórnar Foreldrafélagsins, skv. samþykktum félagsins. Heiðrún og Martha taka að sér að nefna það á fundi í skólanum á morgun en Þórdís og Thelma fari á fund kennara og athugi með áhuga þeirra og afhendi peningagjöf, kr. 100.000 kr., sem fyrri stjórn ákvað. Þórdís sér um að boða komu þeirra.
Fundi slitið kl. 17:00, Heiðrún Tryggvadóttir fundarritari.








