1. fundur stjórnar FFGÍ skólaárið 2013-2014 þann 28. ágúst.
03.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mættar: Thelma Hjaltadóttir, Birna Lárusdóttir, Þórdís Lilja Jensdóttir og Heiðrún Tryggvadóttir.
1. Skólalóð
Ákveðið að senda ályktun þar sem viðhorf félagsins vegna skipulags við nýja skólalóð komi fram. Ályktunin er svohljóðandi:
„Stjórn Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði kom saman til fyrsta fundar vetrarins í gær og ályktaði við það tækifæri um þær framkvæmdir sem nú standa yfir við skólalóð Grunnskólans á Ísafirði. Miklar umræður hafa skapast á ýmsum vettvangi um framkvæmdir við lóð skólans að undanförnu og sitt sýnist hverjum. Stjórn Foreldrafélags GÍ vill taka fram að hún var höfð með í ráðum síðasta vetur og vor þegar unnið var að skipulagi skólalóðarinnar og var það mat stjórnar að með nýja skipulaginu væri stigið stórt skref í átt að betrumbótum á lóðinni. Skipulagið hefur hinsvegar tekið nokkrum breytingum síðan í vor, einkum eftir að ákveðið var að færa fimm ára deild leikskólabarna upp á Sundhallarloftið, og telur stjórnin að þær breytingar hljóti að vera tímabundnar á meðan að leikskólabörnin eru til húsa á þessum stað.
Hluti skólalóðarinnar hefur verið í frekar slæmu ásigkomulagi um langt skeið auk þess sem færa þurfti einn hluta hennar til vegna sölu eigna. Framkvæmdir við skólalóðina voru því nauðsynlegar og þær sem nú standa yfir eru aðeins hluti af þeim breytingum sem gerðar verða á skólalóðinni til framtíðar. Bindur stjórn Foreldrafélagsins miklar vonir við endanlega útkomu sem mun nýtast vel öllum grunnskólabörnum á Ísafirði. Í því sambandi ber að hafa í huga að grunnskólinn er stærsti vinnustaðurinn á Ísafirði. Þar stunda hátt í 400 börn nám og að þeim þarf að hlúa, rétt eins og öðrum íbúum Ísafjarðar. Skóladagur barna hefur lengst frá því sem áður var og því mikilvægt að skólalóðir séu vel útbúnar til að koma til móts við ólíkar þarfir barna.“
2. Fundarhald
Rætt um komandi fundarhald með samtökunum Heimili og skóla og aðalfund foreldrafélagsins. Stefnt að því að aðalfundurinn verði í lok september.
3. Fréttabréf
Samþykkt að senda fljótlega út fréttabréf.
Fundi slitið 17. 15.








