1. - 5. desember

01.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


 


Íslenska:          Þetta er málið, lesbók 1 bls. 52-53, Reykjavíkurljóð. Málrækt 1 bls. 6-19, ritun og hljóðlestur.


 


Stærðfræði:         Stika 1a – Nemendabók,  bls. 79-82, samlagning og frádráttur tugabrota.


 


Samfélagsfræði:    Ísland, veröld til að njóta – Landshlutar. Nú ljúkum við hópavinnunni og nemendur skila sínum verkefnum. Sjá má verkefnin sem búin eru hér: https://tackk.com/grisa2004


 


Náttúrufræði:       Auðvitað 1 bls. 49-52 Tímamælingar.


 


Enska:             Body parts og myndband.


 


Lífsleikni:              Uppbyggingarstefnan og umræður um lýðræði.


 


 


Tilkynningar:



  • Á mánudaginn er 1. desember og minnumst við þá fullveldis Íslands árið 1918. Hefð er fyrir því að starfsfólk skólans klæðist betri fötunum þennan dag og væri gaman ef nemendur gerðu slíkt hið sama ef þeir vilja. Við erum ekki að tala um spariföt, heldur svona aðeins fínni föt. Einnig er opinn dagur og foreldrar sérstaklega velkomnir í heimsókn.

  • Jólaföndrið okkar fer að hefjast og nauðsynlegt að allir komi með fernur sem allra fyrst.



Heimanám: Daglegur lestur.



 


Bestu kveðjur,


Auður og Helga