19. - 23. maí
16.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í vor gerum við ráð fyrir tveimur hjólaferðum, önnur verður mánudaginn 26. maí og hin mánudaginn 2. júní, við seinkuðum annarri ferðinni vegna prófa. Okkur skilst að allir hafi aðgang að hjóli og hjálm. Við óskum eindregið eftir því að fá foreldra með í ferðirnar , hvort sem þeir hjóla með eða komi á áfangastað.
Framsagnarpróf verður á þriðjudaginn 20. maí og þá er prófadagur. Nemendur mæta til að taka prófið og fara svo heim. Þeir fá blað með texta á mánudaginn með sögutexta og ljóði og eiga að æfa sig heima. Í framsagnarprófi þarf að stoppa við punkta og vanda lesturinn. Aftan á æfingarblaðinu er tímasetning fyrir hvern og einn nemanda.
Lesskilningspróf verður á mánudaginn og fyrrihluti stærðfræðiprófs. Seinni hluti stærðfræðinnar verður á miðvikudag.
Skriftarpróf og stutt málfræðipróf verða á fimmtudag.
Eva danskennari býður foreldrum að koma í danstíma á fimmtudag.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði vinnum við í Byrjendalæsi, samþætt íslensku.
Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram í Komdu og skoðaðu þjóðhætti.
Í stærðfræði verða próf og framhaldsvinna í Sprota.
Í íslensku er námsmat.
Í ensku er námsmat.
Svo fara nemendur líka í hringekju, leikfimi, sund, dans, tónmennt, myndmennt og útiveru.
Kveðjur,
Árný og Laufey








