19. - 23. janúar 2015

16.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Íslenska:              Þetta er málið lesbók bls. 68-73, Málrækt 1, 3 bls., stafsetning, ritun og hljóðlestur.


Stærðfræði:         Stika 1a – Nemendabók, rúmfræði bls. 102-106.


Samfélagsfræði:   Trúarbrögðin okkar – hópavinna um helstu trúarbrögð heims.


Náttúrufræði:       Auðvitað 1, upprifjun og próf.


Enska:                  Days, Months and Seasons. Speak out bls. 18-21 og Work out bls. 39-45.


Lífsleikni:             Bekkjarfundur o.fl.


 


Tilkynningar:



  • Nú fer í hönd síðasta vika haustannar, en vorönn hefst mánudaginn 26. janúar. Framundan er námsmat sem byggist á lykilhæfni nemenda, þ.e. virðingu, samhug, menntun og ábyrgð. Einnig fá nemendur einkunnir fyrir hæfni sem byggir á þekkingu og ástundun í hverri og einni námsgrein.
    Við erum búin að ljúka prófum í íslensku og stærðfræði, auk þess sem verkefni nemenda í samfélagsfræði/landafræði verða metin til einkunnar.

  • Í vetur höfum við lesið bókina Auðvitað 1 í náttúrufræðinni og unnið vinnubók samhliða henni. Nú erum við að ljúka bókinni og stefnum á próf úr henni á næsta föstudag. Krakkarnir taka báðar bækurnar með sér heim fyrir helgina og geta því unnið upp ef eitthvað vantar í vinnubókina. Flest eru þau með bókina klára en eitthvað hefur verið um leyfi eða veikindi og því ekki náðst að klára allt. Mikilvægt er að vinnubókin sé vel unnin því leyfilegt er að hafa hana með sem hjálpargagn í prófið. Vinnubókin er síðan metin til lokaeinkunnar ásamt prófinu sjálfu.

  • Nú eru nýir vinaliðar að hefja sína vinnu og hitta þeir Árna íþróttakennara á bókasafni kl. 9:20 á miðvikudag. Þetta eru: Adrian, Arnór Óli, Gautur Óli, Hrefna Dís, Lilja Borg og Viktoría Rós.



 


Heimanám: Daglegur lestur.


 



Bestu kveðjur,


Auður og Helga