19.-23. janúar
16.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
19.-23. janúar 2015
Nú fer að líða að annarskilum og mun næsta vika einkennast af prófum. Prófin verða á eftirtöldum dögum:
Þriðjudag: Hraðlestur
Miðvikudag: Stærðfræði(kl 8)
Fimmtudag: lesskilningur
Föstudagur: Skrift(muna eftir vel ydduðum blýant og strokleðri)
Nemendur fá Sprota heim til upprifjunar, prófað verður úr köflum 8-11.
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Byrjendalæsi: Við vinnum með bókina Ísland áður fyrr og skoðum fjölskylduna í sögunni, ásamt . Þeir þættir sem við vinnum með eru; lestur, skrift, orðaforða og lesskilning.
Stærðfræði: Sproti 2b, upprifjun og bls. 91 ásamt æfingahefti og aukabókum
.
Tónmennt: Þorraþræll og samsöngur.
Lífsleikni: Uppbygging og frímínútur.
Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, heimilisfræði og textílmennt.
Heimavinna
- Lesa a.m.k. 5 sinnum í viku eða oftar J
Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Kveðja,
Kristín og Ingibjörg








