18. - 22. nóvember 2013

15.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessi vika er skáldavika þar sem fjallað verður um Þórarinn ldjárn og verk hans.


Dagur íslenskrar tungu er þann 16. nóvember.


Þá minnumst við Jónasar Hallgrímssonar og skoðum veðurljóð eftir hann.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:




Í náttúrufræði skoðum við veturinn og myrkrið og hvernig bregðast dýrin við  á þessum tíma.


Veður og orð tengd veðri eru í skoðun þessa dagana og við höldum því talsvert áfram.


 


Áfram verður fjallað  um mannkynssöguna. Núna erum við að fjalla um Evrópu á miðöldum.


Í stærðfræði vinnum við áfram í Sprota á einstaklingsgrundvelli.


 


Í íslensku vinnum við í Sögusteini, skrifum og lesum og förum í stöðvavinnu.


 


Upplýsingatæknin verður samþætt byrjendalæsinu og náttúrufræði.


 


Enskan verður samþætt upplýsingatækni og náttúrufræði.Svo fara nemendur líka í hringekju,myndmennt, tónmennt,  íþróttir, sund, dans og útiveru.


 


Umræða  er alltaf öðru hvoru um hegðun og ástundun í skólanum og lífsleikninni er fléttað inn í
mörg fög t.d. íslensku, samfélagsfræði og tónmennt.



Kveðjur,                                 

Árný og Laufey