18. - 22. nóvember
15.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Minnsta málið lesbók bls. 26-28 og vinnubók 56-60. Ritun – saga.
Stærðfræði: Stika 3a bls. 80-85, margföldun og deiling.
Náttúrufræði: Auðvitað 3 bls. 40-50 Orka og orkunotkun.
Samfélagsfræði: Kristinfræði – Upprisan og lífið bls. 20-29.
Danska: Talað mál og orðaforði.
Enska: Lesbók bls. 98-104, vinnubók bls. 24-28.
Upplýsingatækni: Glærukynning um sýkla og svartadauða, samþætt við samfélagsfræðina
Lífsleikni: Hlutverkin okkar og bekkjarsáttmáli.
Tilkynningar:
- Á mánudaginn verður Stóra upplestrarkeppnin sett í Hömrum. Allir nemendur 7. bekkjar eru þátttakendur í því æfingaferli sem fer nú af stað og verður áhersla lögð á framsögn næstu vikurnar.
- Frestur til að læra ljóðið ,, Lofsöngur“ er fram á mánudag. Þeir sem ekki gera ljóðunum skil í vetur þurfa að taka ljóðapróf í maí.
- Í næstu viku er skáldavika, þar sem skáldið Þórarinn Eldjárn verður kynntur.
Heimanám
Lesa heima í a.m.k. 15 mínútur á dag og skrifa í viðeigandi stílabók (heima eða í skóla).
Ljúka skólaverkefnum ef einhver eru.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








