18. - 22. maí
15.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Upprifjun og próf, heimsókn á Bæjarbókasafnið.
Stærðfræði: Könnun úr margföldun og deilingu og upprifjun úr efni vetrarins.
Samfélagsfræði: Víkingaöldin – bókin kláruð ásamt hópverkefnum sem unnin hafa verið síðustu vikur. Ekki verður próf í samfélagsfræðinni, heldur verða verkefni og vinna vetrarins metin til einkunnar.
Náttúrufræði: Lífríkið í sjó – upprifjun og verkefni kláruð. Ekkert próf verður í náttúrufræðinni, en verkefni og vinna metin til einkunnar.
Enska: Flags and countries, próf.
Lífsleikni: Hópefli.
Tilkynningar:
- Nú fer síðasta heila vika skólaársins í hönd og einkennist hún af upprifjunum og námsmati.
- Á mánudaginn er könnun úr margföldun og deilingu hjá þeim sem ekki hafa lokið við hana.
- Á miðvikudaginn er enskupróf og eiga nemendur að skila vinnubók og stílabók. Ekki er þörf á að undirbúa sig neitt sérstaklega fyrir prófið.
- Á fimmtudaginn er próf í málfræði og stafsetningu og höfum við verið að undirbúa okkur fyrir það í íslenskutímunum. Krakkarnir taka vinnubækurnar sínar með sér heim fyrir prófið. Það sem þarf að hafa á hreinu er: Nafnorð (samnöfn og sérnöfn), kyn nafnorða og greinir, sagnorð, lýsingarorð, fallbeyging, samheiti og andheiti.
- Á föstudaginn er lesskilningspróf.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








