18.-22.mars
15.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

- Stóra upplestrarkeppnin var síðastliðið miðvikudagskvöld, upplesarar, áheyrendur og hljóðfæraleikarar úr 7.bekk stóðu sig allir með stakri prýði og voru skólanum til sóma.
- Árshátíð skólans verður fimmtudaginn 21.mars og föstudaginn 22.mars. Árshátíðarbréf hefur verið sent út. Páskafrí hefst að lokinni sýningu á föstudag og skólahald hefst miðvikudaginn 3.apríl J
-Nemendur þurfa að koma með búningana í skólann í síðasta lagi á mánudaginn-sumt kemur að heiman og annað úr búningageymslunni okkar góðu J
- Árgangurinn ætlar að hafa það notalegt eftir að þau eru búin að sýna á fimmtudagskvöldið og þangað til sýningu lýkur, þau mega koma með gos/nammi/snakk í hófi. Einnig mega þau koma með spil að heiman.
Íslenska: Frjáls lestur, Minnsta málið vinnubók 2: verkefni 31, Minnsta málið lesbók bls. 84-85.
Stærðfræði: Geisli 3A. Hnitakerfi bls.110-111,
Geisli vinnubók bls. 21-23.
Náttúrufræði: Maðurinn-Hugur og heilsa: Húðin:lesbók bls. 40-47,
vinnubók bls. 24-26.
Samfélagsfræði: Upprisan og lífið bls. 82-101.
Danska: Start
Enska: Action.
Lífsleikni: Árshátíð.
Ekkert formlegt heimanám í þessari viku en munið að vera dugleg að lesa heima í páskafríinu :-)
Kveðja, Erna og Magga








