18.-22. maí
13.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
18.-22. maí 2015
- Prófað verður úr Sprota 2b á miðvikudaginn úr köflum; 12, 13 og 14, ásamt uppsettum dæmum í samlagningu og frádrætti. Gott að skima yfir þessa kafla heima og fara vel yfir gulu síðurnar (Æfingasíða). Bókin kemur heim á föstudag.
- Í vikunni ætla allir að skrifa bréf til einhvers sem þau þekkja og þau eiga að koma með á miða á mánudag með upplýsingum um viðtakandann (fullt nafn, heimilisfang, póstnúmer og stað). Síðan skrifa þau bréfið og utan á umslagið í skólanum.
- Þessi vika er prófavika og því mikilvægt að vera með vel yddaðan blýant, strokleður og dósayddara.
- Á mánudag er lesskilningspróf kl. 10.
- Á þriðjudag er skriftarpróf í fyrstu lotu og danssýning fyrir foreldra kl 12:20-13 í danssalnum.
- Á miðvikudag er stærðfræðipróf kl 8.
- Á fimmtudag förum við með bréfin okkar á pósthúsið og fáum að fara og skoða þar á bak við og kynnast hvað þar er gert.
- Á föstudag förum við í rútuferð til Bolungarvíkur að skoða Náttúrugripasafnið. Þá á að koma með nesti (+hádegismat fyrir þá sem eru ekki í mötuneytinu) í léttum bakpoka (enga skólatösku). Við leggjum af stað frá skólanum kl 8:30 og komum til baka kl 12 í hádegismat.
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Byrjendalæsi: Við vinnum áfram með bókina Gula sendibréfið eftir Sigrúnu Eldjárn. Við vinnum með eftirfarandi þætti: skrift, uppbyggingu sendibréfs, utanáskrift á umslögum og heimsókn á pósthús. Lesskilningspróf og skriftarpróf.
Stærðfræði: Rifja upp fyrir þá þætti sem koma fyrir á prófinu. Stærðfræðipróf og aukabækur.
Tónmennt: Lagið: Inn og út um gluggann.
Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, dans og tæknimennt/myndmennt.
Heimavinna
- Lesa a.m.k. 5 sinnum heima upphátt fyrir fullorðinn. Ef það gleymist að skipta um bók í skólanum, þá er bara að lesa í bók/blaði heima J
Kveðja,
Kristín og Hrafnhildur








