17. – 21. mars 2014
14.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hraðlestrarprófin gengu vel og núna er bara eitt próf eftir á vetrinum.
Við hvetjum alla til að sinna heimalestrinum vel því að æfingin skapar meistarann.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði vinnum við í bókinni Náttúran allan ársins hring. Við ætlum að fræðast um fugla og byrjum á vorboðanum ljúfa, lóunni. Svo skoðum við hreiðurgerð nokkura fuglategunda.
Í samfélagsfræðinni vinnum við í Komdu og skoðaðu þjóðhætti, þar sem við skoðum íslenskar venjur og siði úr gamla tímanum og hvernig þetta virkar á líf okkar enn í dag. Við verðum í all nokkurn tíma með þessa bók.
Í stærðfræði vinnum við niður bls. 69 í Sprota 4B. Við erum að athuga mælingar og notum margföldun og deilingu í þeirri vinnu.
Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og bókin Sögusteinn er notuð í verkefni og lestur. Við höfum bætt við bókinni Málrækt sem er með ýmsum málfræðiæfingum.
Árshátíðarundirbúningur verður eftir hentugleikum fram að árshátíðinni.
Í ensku verður unnið með bókina Amazing animals og orðaforða um vorið.
Svo fara nemendur líka í dans, hringekju, leikfimi, myndmennt, sund. tónmennt og útiveru.
Kveðjur,
Árný og Laufey








