17. – 21. feb. 2014
14.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði höldum við áfram að læra um hafið. Við kynnum okkur strandlengju Íslands og sjávarútveginn nú og áður fyrr.
Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram verkefni um lifnaðarhætti í Afríku og gerum verkefni um húsin þar.
Í stærðfræði vinnum við niður bls. 42 í Sprota 4B, sem er margföldun og deiling.
Nemendur fengu margföldunarbækling til að læra margföldunartöflurnar utan að. Hann á að geyma í lestrarvasanum en má auðvitað nota við stærðfræðinámið.
Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og ljóðavinna. Við lesum Sögustein og gerum verkefni samkvæmt Byrjendalæsi úr þeirri bók.
Í myndmennt er áfram unnið með skrímsli.
Í ensku verður upprifjun á orðaforða og unnið með bókina amazing animals.
Upplýsingatækni verður samþætt íslensku og stærðfræði.
Svo fara nemendur líka í hringekju, dans, tónmennt, sund, leikfimi og útiveru.
Kveðjur,
Árný og Laufey








