17.-21.september
14.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

- Lestrarlota byrjar í skólanum á mánudaginn sem stendur út septembermánuð. Þá lesum við 15 mínútur á dag í skólanum og á hverjum degi heima.
- Fimmtudaginn 20.september verður samræmt próf i íslensku og föstudaginn 21.september í stærðfræði. Prófin hefjast klukkan 9:00 – 11:40 (hlé frá 10:10-10-30) í bekkjarstofunum okkar. Nemendur eiga að vera mættir a.m.k 20 mínútum fyrir próf með nesti. Mikilvægt er að huga mjög vel að svefni og næringu þessa daga. Allir nemendur þurfa að koma með svartan (dökkbláan) kúlupenna ásamt dökkum blýanti og strokleðri í bæði prófin. Í stærðfræðiprófið á föstudaginn þarf að koma með að auki gráðuboga, reglustiku og vasareikni. Gott er að taka með frjálslestrarbókina (til þess að lesa ef þau klára prófið snemma).
- Átaksverkefnið „Göngum í skólann“ hófst hjá okkur mánudaginn 10.september. Við hvetjum því alla til að vera duglega að ganga eða hjóla í skólann (ekki er um keppni eða skráningu að ræða).
- það verða engin skil á heimanámi í þessari viku vegna samræmdu prófanna.
Íslenska: Frjáls lestur, upprifjun fyrir samræmdu prófin
Stærðfræði: Upprifjun fyrir samræmdu prófin
Náttúrufræði : Auðvitað 3 bls. 14-17
Samfélagsfræði: Ein grjóthrúga í hafinu bls. 14-27, Var Ísland eitthvað einkennilegt?
Danska : Start
Enska : Build Up.
Lífsleikni: Hlutverkin
Heimanám –ekki er um formlegt heimanám að ræða í þessari viku en við bendum á vefinn namsmat.is þar sem samræmd próf síðustu þriggja ára er að finna.
Íslenska og stærðfræði: namsmat.is – http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/samramd.html
Fyrir heimalesturinn nota nemendur lestrarmiða og eiga foreldrar að fylgjast með lestrinum og kvitta fyrir.
Bestu kveðjur, Erna og Magga |








