17.-21. nóvember

14.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur


17.-21. nóvember


 



  • Í tilefni af degi íslenskrar tungu munum við vinna með ljóðið Veðurspá  eftir Andra Snæ Magnason, sem er skáld vikunnar í skólanum .

  • Á fimmtudag tökum við fyrra Læsis-prófið í vetur, þar sem verið er að kanna lesskilning.

  • Á föstudag ætlum við að gera okkur glaðan dag og hafa Ruglu-dag, þá er hægt að klæða sig frjálslega, s.s. öfuga peysu eða á röngunni, sitt hvorum sokknum o.s.fv.


 


 


Viðfangsefni vikunnar er m.a.


 


Íslenska:                  Unnið með ljóðið Veðurspá eftir Andra sSnæ Magnason. Markmið vikunnar er að nemendur auki orðaforða sinn sem athugun á samsettum orðum, ásamt ný-yrðum og tímatöku í lestri.


Stærðfræði:                    Sproti 2a, Æfingahefti; Kafli 10. Reikningur með tölum upp í 100. Við munum vinna bls. 58-61 í nemendabók, ásamt æfingahefti og aukabókum.


Tónmennt:              Á íslensku má alltaf finna svar og Í grænni lautu.


Lífsleikni:                 Samskipti og þarfastjarnan.


 


Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, heimilisfræði og upplýsingatækni.


 


 



Heimavinna


-       Lestur daglega.


Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.



 


 


Kveðja,


Kristín og Ingibjörg