16. desember – 20. desember

20.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur


16. desember – 20. desember


 


 


 


Þá er komið að síðustu skóladögunum fyrir jólafríið.


Mánudagur til fimmtudags eru venjulegir skóladagar og þá ætlum við


að halda áfram að rifja upp og æfa okkur í ýmsum lestratengdum verkefnum og samlagningu og frádrætti auk þess sem við  vinnum ýmislegt sem tengist jólahátíðinni. Leikfimin  verður  á sínum stað og í jólasundinu á þriðjudaginn mega nemendur hafa með sér vatnsleikfang að viðráðanlegri stærð.


Enginn sérstakur skreytingadagur verður að þessu sinni heldur verður fimmtudagurinn bara hefðbundinn skóladagur frá 8-14. .  Gott væri að nemendur hefðu með sér heftara og hefti í skólann þann daginn þar sem við ætlum að búa til jólakeðjur.


 


 


Föstudaginn 20. desember eru svo Litlu jólin og mæta þá nemendur spariklæddir kl: 9.00. Nemendur koma þá með smákökur og gos eða fernudrykk með sér í nesti.  Við ætlum að hafa notalega stund í stofunni okkar og fara á jólaball. Skóla lýkur svo kl. 12:00 og þar með hefst jólafríið. Strætisvagnar fara þá frá skólanum kl. 12:15 og Dægradvöl opnar kl. 12:00


 


Sú hefð hefur skapast hér við skólann að börnin skiptast á gjöfum á Litlu jólunum.  Börnin eiga að skila gjöfunum til umsjónarkennara eigi síðar en miðvikudaginn 18. desember.  Gjöfin á að vera innpökkuð og henta báðum kynjum.  Hámarksverð er 500 kr.


Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 7. janúar samkvæmt stundaskrá.


 


Óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og þökkum samvinnuna á árinu sem er að líða.


 


 Jón Heimir og Sigþrúður