16. – 20. des 2013

13.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Síðasta vikan fyrir jólafrí!


Mánudaginn 16. desember verður Tarzanleikur í leikfimitímanum.
Á fimmtudag verður venjulegur skóladagur og á föstudag eru litlu jólin.


Þá mæta nemendur spariklæddir í skólann klukkan 9 og fara úr skólanum klukkan 12.
Pakkaleikurinn verður á sínum stað, hámarksverð er 500 kr. og gott væri að allir pakkar séu komnir til okkar á miðvikudag.



Hraðlestrarprófsblöðin voru send heim í vikunni. Við minnum á að kvitta á blöðin og skila þeim aftur til okkar.


 


Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 7. janúar samkvæmt stundaskrá.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:





Í náttúrufræði skoðum við snjókornakristalla og förum í jólaföndur.





Í samfélagsfræðinni tökum við sögur úr Birtunni,  þær sem  tengjast aðventu og jólum. Þar er talsvert tekið á félagsfærni.





Í stærðfræði vinnum við áfram í Sprota á einstaklingsgrundvelli.




Í íslensku vinnum við áfram í byrjendalæsi út frá kvæðinu Jólasveinarnir eftir Jóhannes úr Kötlum, skrifum og lesum, förum í
stöðvavinnu og jólaföndur.




Upplýsingatæknin verður samþætt íslensku og jólavinnu.




Svo fara nemendur líka í hringekju,myndmennt, dans,  tónmennt,  íþróttir og útiveru.



 
Kveðjur,                                 

Árný og Laufey