16. - 20. september

13.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 7. bekkjar


16. - 20. september 2013


 


Íslenska:   Mál er miðill og upprifjun fyrir samræmd könnunarpróf.


Stærðfræði:    Gömul samræmd könnunarpróf til æfingar.


Náttúrufræði: Auðvitað 3 bls. 9 – 14, Byggingareiningar alheimsins.


Samfélagsfræði: Ein grjóthrúga í hafinu bls. 16-27, Var Ísland eitthvað einkennilegt.


Danska: Talað mál og orðaforði.


Enska: Action 1 bls. 84-89 og vinnubók bls. 12-15.


Upplýsingatækni: Gagnvirkar æfingar á Skólavefnum.


Lífsleikni: Bekkjarfundur


 Tilkynningar:



  • Samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir nemendur í 7. bekk dagana 26. og 27. september n.k. Mikilvægt er að æfa sig fyrir þau svo nemendur þekki form þeirra, útlit og lengd og viti þannig við hverju megi búast . Við munum æfa okkur næstu vikur á prófum áranna 2011 og 2012 og megið þið gjarnan taka próf ársins 2010 fyrir heima. Prófin ásamt öllum frekari upplýsingum er að finna inni á síðunni http://www.namsmat.is    

  • Á þriðjudaginn bjóðum við foreldrum til haustfundar frá kl. 8:10-8:40 að morgni í dansstofunni (gengið inn frá Aðalstræti). Þar munum við fara yfir vetrarstarfið í stuttu máli. Nemendur þurfa ekki að mæta þann dag fyrr en eftir fundinn kl. 8:40, en þeir sem ekki hafa ferð þá, geta mætt kl. 8: 00 og látið fara vel um sig á bókasafninu á meðan.

  • Á þriðjudaginn kemur hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans og býður skólanum upp á tónleika á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla.
    Tónleikarnir fyrir 7. bekk verða kl. 12:20 – 13:00 í Hömrum.

  • Við höldum áfram með lestrarátakið út þessa viku. Lögð er áhersla á að allir lesi heima daglega auk lesturs í skólanum.

  • Við erum enn að huga að haustgöngunni upp að Fossavatni og vonum að við getum gripið einhvern þurran góðviðrisdag. Við látum vita heim með fyrirvara.


 


Bestu kveðjur,


Auður og Helga