16. - 20. desember
13.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Vinnubók bls. 85, framsögn og jólasögur.
Stærðfræði: Stjörnubækur og unnið út frá jólaundirbúningi.
Náttúrufræði: Unnið upp óklárað efni og horft á myndband.
Samfélagsfræði: Kristinfræði – jólakveðjur til bekkjarfélaga.
Danska: Start læsebog og opgavebog - orðaforði.
Enska: Myndband – Lion King.
Upplýsingatækni: Jólavefir.
Lífsleikni: Bekkjarandi og jólaföndur
Tilkynningar:
- Nú fer í hönd síðasta kennsluvika fyrir jólaleyfi. Vinnan verður því nokkuð á jólalegum nótum og verður engin vinnuáætlun þessa viku.
- Kennt verður samkvæmt stundaskrá fram á miðvikudag, en eitthvað uppbrot verður á fimmtudaginn og kemur það í ljós eftir helgi. Mötuneytið verður á sínum stað fram á fimmtudag.
- Á föstudag verða litlu jólin hjá okkur. Þann dag mæta nemendur prúðbúnir kl. 9:00. Samkvæmt venju verður dansað í kringum jólatré, sungið og átt notalega stund í bekkjarstofu. Nemendur mega hafa smákökur og drykk að eigin vali í nesti.
Venja er að nemendur skiptist á litlum jólapökkum á litlu jólunum. Verðmæti pakkans er kr. 500 að hámarki og þarf að koma með hann í skólann í síðasta lagi á fimmtudag.
Skóla lýkur kl. 12:00 þann dag og er mötuneytið lokað. - Kennsla hefst aftur að jólaleyfi loknu þriðjudaginn 7. janúar 2014.
Við óskum nemendum og fjölskyldum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum góð samskipti og samstarf á árinu sem er að líða,
Auður og Helga








