16.-20. febrúar
13.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
16.-20. febrúar 2015
- Á bolludag (mánudagsmorgun) 8:20-9:10 verður grímuball hjá okkur, nemendur koma grímuklæddir í skólann en vopn eru ekki leyfð .
- Þeir sem vilja mega hafa með sér rjómabollu í nesti.
- Á sprengidag (þriðjudag) verður starfsdagur kennara og frí hjá nemendum.
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Byrjendalæsi: Við vinnum með bókina Ísland áður fyrr- tímatal Þeir þættir sem við vinnum með eru; lestur, skrift, orðaforða, lessilning og kynnist aðbúnaði fólks um aldamótin 1900 og berum saman lífið frá þeim tíma og nútímann. Í gagnvirka lestrinum æfum við Listamanninn en hann býr til myndir og upplifanir í tengslum við það sem hann sér, heyrir og finnur.
Stærðfræði: Sproti 2b, Nemendabók; bls. 107-111 Æfingahefti; 12 kafli og aukabækur.
Tónmennt: S amsöngur.
Lífsleikni: Uppbygging og frímínútur.
Einnig förum við í íþróttir, tæknimennt og textílmennt.
Heimavinna
- Lesa a.m.k. 5 sinnum í viku eða oftar J
Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Kveðja,
Kristín








