16.-20. desember

12.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


16. – 20. desember



  • ·        Þá er komið að síðustu vikunni fyrir jólafrí en það hefst kl. 12 föstudaginn 20. desember. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 7. janúar samkvæmt stundaskrá.

  • ·        Í útivistartímanum á mánudaginn verður farið í hefðbundna Tarzan leik og þurfa krakkarnir því að hafa íþróttaföt með sér.

  • ·        Á mánudaginn er líka bekkjaskemmtun á vegum bekkjafulltrúa kl. 17:30 – 19:00 í dansstofunni (sjá dreifimiða í lestrarvasa).

  • ·        Föstudaginn  20. desember eru litlu-jólin . Þá er skólatími frá kl. 9:00 - 12:00   Dægradvöl opnar kl. 12.                      Strætó fer kl 12:10.

  • ·        Á litlu-jólin mæta allir prúðbúnir í bekkjarstofuna þar sem við munum eiga góða stund saman, við ætlum að vera í jólaskapi og  spila litlu-jólabingó, hlusta á jólasögu, borða jólasmákökur og drekka gos eða safa, syngja jólalög, skiptast á jólapökkum og förum á jólaball. Jóla hvað ;)  Þennan dag má koma með jólasmákökur og gos/safa í nesti.

  • ·        Sú hefð hefur myndast í skólanum að á litlu jólunum skiptast nemendur á jólapökkum. Pakkarnir mega ekki kosta meira en 500 kr. og þurfa að henta bæði strákum og stelpum. Koma þarf með 1 stk. pakka í skólann í síðasta lagi þriðjudaginn 17. desember.


 


 


Viðfangsefni vikunnar :


Íslenska: Byrjendalæsi;   Unnið verður með ljóðið Jólasveinakvæði eftir Jóhannes úr Kötlum og fleiri texta tengda jólum.


Stærðfræði: Sproti 1b; nemendabók bls. 56 - 61  og aukabækur. Tölurnar 1 – 20


Náttúrufræði: Jólaföndur úr könglum og fl. sem við týndum í Jónsgarði í haust.  


Samfélagsfræði:  Aðventan og jólaundirbúningur


Lífsleikni: Aðventustund.
Tónmennt: Jólalög.
Myndmennt: Jólaföndur  


Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist.


 


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


Mikilvægt er að allir lesi reglulega heima í jólafríinu svo börnunum fari ekki aftur í lestrinum.

 


Sögubókin: Farin í jólafrí.


Bestu jólakveðjur


Helga og Kristín