15. - 19. september

12.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Íslenska:          Þetta er málið, lesbók 1 bls. 18-19 Heilræðavísur og vinnubók bls. 10-14   stafsetning o.fl. Ljóð: Fjallganga (1. erindi) – lært næstu vikurnar.  Hljóðlestur.


 


Stærðfræði:         Stika 1a – Nemendabók bls. 14-18, samlagning og frádráttur, ásamt ítarefni úr æfingahefti.


 


Samfélagsfræði:    Ísland, veröld til að njóta – lesbók bls. 10-15 Jörðin, innviðir hennar og aldur. Vinnubók bls. 6-8.


 


Náttúrufræði:       Auðvitað 1 bls. 15-17, ljós, linsur og speglar.


 


Enska:             Speak out – orðaforði.


 


Lífsleikni:              Uppbyggingarstefnan – þarfir okkar.


 


Tilkynningar:



  • Norræna skólahlaupið fer fram þriðjudaginn 16. september.

  • Fimmtudaginn 18. september kl. 8:00 ( í sal skólans) er fyrirlesturinn Ást gegn hatri, þar sem feðginin Selma Hermannsdóttir og Hermann Jónsson fjalla um einelti.  Athugið að krakkarnir mæta þá beint í skólann, en ekki á Torfnes.

  • Á fimmtudaginn er einnig Tónlist fyrir alla. Þá mun tríóið Tríópa heimsækja okkur, en það samanstendur af söngvurunum Hallveigu Rúnarsdóttur sópran, Jóni Svavari Jósefssyni barítónsöngvara og Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara. Þau munu flytja hluta úr Töfraflautunni eftir Mozart.

  • Fyrsta hraðlestrarpróf vetrarins verður í þessari viku og leggjum við mikla áherslu á lestur og lesskilning í vetur.


 



Heimanám: Daglegur lestur.



Bestu kveðjur,


Auður og Helga