15. - 19. desember 2014
12.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Málrækt 1, 3 bls., ritun og hljóðlestur.
Stærðfræði: Stika 1a – Nemendabók, bls. 95-97, rúmfræði.
Samfélagsfræði: Brauð lífsins – kristnin, jólin.
Náttúrufræði: Auðvitað 1 bls. 55-56, hljóð.
Enska: Kids in Britain: Christmas
Lífsleikni: Samhugur
Tilkynningar:
- Hefð er fyrir því að skiptast á jólapökkum á litlu jólunum. Nemendur þurfa að koma með þessa pakka í skólann sem fyrst og má verðmæti þeirra ekki fara yfir kr. 500 til að gæta alls jafnræðis.
- Á mánudaginn verður jólasundtími og mega nemendur þá koma með eitthvað sunddót sem þeir geta auðveldlega ráðið við.
- Á þriðjudaginn verður aukaíþróttatími kl. 8:40 á Torfnesi, þar sem farið verður í hinn árlega Tarzan-leik.
- Á fimmtudaginn er skreytingadagur í skólanum, en íþróttir verða á sínum stað.
- Á föstudaginn eru litlu jólin. Þá mæta nemendur spariklæddir í skólann kl. 9:00 og eiga notalega stund í sínum heimastofum og dansa og syngja í kringum jólatréð. Nestið er óhefðbundið þennan dag, þar sem nemendur mega taka með sér gos/fernudrykk og smákökur.
Skóla lýkur kl. 12:00 þennan dag og fer strætó kl. 12:05. - Kennsla hefst á nýju ári þriðjudaginn 6. janúar 2015.
Heimanám: Daglegur lestur.
Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla
og þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða.
Auður og Helga








