15. - 19. apríl
12.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

- Í þessari viku byrjum við að lesa Gunnlaugs sögu ormstungu sem er ein af styttri sögum Íslendingasagna, talin rituð seint á 13. öld. Gunnlaugs saga hefur lengi verið með vinsælustu Íslendingasögunum og kemur þar margt til. Í fyrsta lagi er hún skemmtileg og fjallar um efni sem höfðar til fólks. Þá er hún bæði stutt og auðlesin. Nemendur eiga að undirbúa sig heima með því að lesa ákveðnar blaðsíður.
- Einnig er hægt að hlýða á upplestur sögunnar á þessari heimasíðu: http://skolavefurinn.is/_opid/islenska/bokmenntir/isl_sogur/tegund/sagas/sogur/gunnlaugssaga/index.htm
Íslenska: Frjáls lestur, Minnsta málið 2 lesbók bls. 7-15, Minnsta málið vinnubók verkefni 32, Gunnlaugs saga ormstungu bls. 15-31
Stærðfræði: Geisli 3A. „Ekki er allt sem sýnist“ bls.112-116, Geisli vinnubók bls. 24-25.
Náttúrufræði: Maðurinn-Hugur og heilsa, lesbók bls. 54-57, vinnubók bls. 31-34.
Samfélagsfræði: Evrópa; þjónusta og iðnaður: grunnbók bls. 19-20, vinnubók bls. 31-33.
Heimanám Lesa heima a.m.k 5 sinnum í viku ! Íslenska „Á fætur“ lært utanað, verkefnablað „Ormstunga“ bls.15-31-lesa ákv. blaðsíðu.
|
Danska: Start.
Enska: Action.
Lífsleikni: Vinátta.
Kveðja, Erna og Magga








