15.-19.október
12.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

- Við ætlum að taka þátt í verkefninu „Jól í skókassa“ sem er á vegum KFUM og KFUK. Verkefnið felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem lifa við fátækt sjúkdóma og erfiðleika, með því að gefa þeim jólagjafir. Nemendur fá kynningarblað heim. Við hvetjum alla til að vera með en þátttaka er ekki skylda J
- Skókassar og jólapappír fyrir „Jól í skókassa“.
- Skáld vetrarins er að þessu sinni Ólafur Haukur Símonarson og verður íslenskan að hluta tileinkuð hans verkum.
- Munið eftir að kvitta á og senda eyðublaðið með hraðlestrarprófinu tilbaka í skólann.
- Heimanám verður afhent á föstudag og skil á fimmtudag að venju.
Íslenska: Frjáls lestur, Völusteinn bls. 30-36; Í dulargervi;leikþáttur
Minnsta málið lesbók 2 bls. 40-42, vinnubók 1 verkefni 32-34.
Stærðfræði: Rúmmál: Geisli 3;Almenn brot bls. 31-35-valin dæmi Geisli 3A bls. 14-15.
Náttúrufræði : Auðvitað 3, bls. 23-29.
Samfélagsfræði: Miðaldafólk á ferð bls. 6-15.
Danska : Start
Enska : Action.
Lífsleikni: Bekkjarsáttmáli
Heimanám afhent á föstudag og skil á fimmtudag
Íslenska: 1 blaðsíða í skrift
Stærðfræði: Verkefnablað
Fyrir heimalesturinn nota nemendur lestrarmiða og eiga
foreldrar að fylgjast með lestrinum og kvitta fyrir Bestu kveðjur, Erna og Magga








