15.-19. desember
12.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
15.-19. desember
- Við munum „jólast“ á fullu og skreyta í kringum okkur J
- Fram að jólum er í boði að koma með tússliti, jóla-límmiða, glimmmer og þess háttar.
- Á mánudaginn verður auka leikfimi kl. 10:20, því þá er Tarzan-leikur og verða 2. Og 3. bekkur saman. Muna eftir leikfimisfötum þann dag.
- Á þriðjudaginn verður jólasund og mega nemendur koma með eitthvað smádót (eitthvað sem passar ofan í skólatöskuna
- Á miðvikudaginn förum við að sjá danssýningu í Edinborgarhúsinu
- Á fimmtudaginn sjáum við jólasýningu á Bæjarbókasafninu.
- Föstudaginn 19. desember eru litlu-jólin. Þá er skólatími frá kl. 9:00 - 12:00
og fer strætó kl. 8:40 úr Firðinum og Hnífsdal og aftur heim kl. 12.15. Dægradvöl opnar kl. 12. (Enginn matartími hjá nemendum).
- Á litlu-jólin mæta allir prúðbúnir í bekkjarstofuna þar sem við munum eiga góða stund saman, við ætlum að vera í jólaskapi og spila jólabingó, hlusta á jólasögu, borða jólasmákökur og drekka gos eða safa, syngja jólalög, skiptast á jólapökkum og förum á jólaball. Þennan dag má koma með jólasmákökur og gos/safa í nesti, í léttum bakpoka.
- Sú hefð hefur myndast í skólanum að á litlu jólunum skiptast nemendur á jólapökkum. Pakkarnir mega ekki kosta meira en 500 kr. og þurfa að henta bæði strákum og stelpum. Koma þarf með 1 stk. pakka í skólann í síðasta lagi þriðjudaginn 16. desember.
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Íslenska: Ýmis vinna tengd íslensku, skrift, lestur og jólaverkefni.
Stærðfræði: Jólastærðfræði, ásamt æfingahefti og aukabókum.
Tónmennt: Jólalög og samsöngur.
Lífsleikni/Kristinfræði: Regnboginn; jólin og aðventustund.
Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, heimilisfræði og textílmennt.
Heimavinna
- Lestur daglega.
Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Kveðja,
Kristín og Ingibjörg








